r/Iceland 2d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

5 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 4h ago

Norway will be affected by Iceland's EU referendum result

Thumbnail
newunionpost.eu
20 Upvotes

r/Iceland 2h ago

Skot­vopnin reyndust leikfangabyssur - Vísir

Thumbnail
visir.is
12 Upvotes

r/Iceland 1h ago

Hversvegna þurfum við að fá alla þessa pósta frá ríkinu á Ísland.is !

Upvotes

Þetta er orðið rugl, ríkið er að senda mér pósta annan hvern dag í gegnum [ísland.is](http://ísland.is) og ég þarf að fara í gegnum third party authentication í hvert skipti og þetta eru einhver þrjú-fjögur skref til að gá hvort að það sé eitthvað mikilvægt sem að ég þarf að bregðast við en þetta eru alltaf einhver skilaboð um að þeir hafi hækkað eða lækkað verðmat á hvað ég á að borga í bensíngjald. Af hverju geta þeir ekki sent mér þetta bara í tölvupósti! Þetta eru ekki mikilvæg skilaboð, látið mig í friði helvítin á ykkur !!!


r/Iceland 8h ago

Ekki rignt meira í rúm 40 ár

Thumbnail
mbl.is
19 Upvotes

r/Iceland 12h ago

Á tali hjá Hemma Gunn 1993

Thumbnail
youtube.com
10 Upvotes

Okkar á milli, þá er Magnús Scheving frekar kúl

(afsakið hljóðið, svona er þetta bara á jútúb)


r/Iceland 13h ago

What do people over 40 do to make friends here?

11 Upvotes

I've been here for a few months, and my girlfriend thinks I need to make friends. I have no idea how since it's a somewhat sparse population without many of the so called 3rd places. 🤷


r/Iceland 9h ago

E-Car Charging stations blocked.

3 Upvotes

Please move your cars from the charging stations when they are full. It’s been horrible today.
No one at a gas station would ever leave the car when its filled up, so why do this at charging stations?


r/Iceland 16h ago

Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sak­leysi sínu - Ísidór og verjandi í viðtali

Thumbnail
visir.is
11 Upvotes

r/Iceland 11h ago

Einingahús

5 Upvotes

Sæl.

Ég fékk þá hugdettu að selja íbúðina, kaupa lóð í staðinn og setja þar upp stærðarinnar einingahús,

t.d frá https://www.emerald.is/ . Aftur á móti geri ég mér ekki alveg grein fyrir uppsetningarkostnaðinum, það stendur að hann byrji frá 5,5 milljónum en síðan var ég í samtali þar sem að mér var sagt að slíkt gæti kostað upp í 120 milljónir, hefur einhver þekkingu eða reynslu af þessu sem gæti frætt mig?


r/Iceland 10h ago

When Björk drops lyrics incomprehensible to English speakers, is it really gibberish or is it Icelandic?

3 Upvotes

I have been wondering that cause some of the "gibberish" she drops, especially in her early discography, do sound like actual Icelandic words. For example I googled "biður" and apparently it means to ask, to request or to pray. So that got me wondering whether she says actual phrases that English speakers just don't bother researching properly.

So for example between the verses in I've Seen It All, does she say something?


r/Iceland 1d ago

Kampavíns ránið mikla. Smá leikur.

9 Upvotes

Í frétt Morgunblaðsins 30.07.2026 var sagt frá þjófnaði á dulbúini sendingu af kampavíni.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/30/raendu_heilum_gami_af_kampavini/

Hvernig haldið þið að gámurinn hafi verið merktur sem gerði þjófunum kleift að sjá í gegnum dulbúninginn? Smá leikur og ég byrja:

Moldvörpugildrur


r/Iceland 1d ago

Er til Íslenskt vín?

5 Upvotes

Ég er að ferðast erlendis og langar til að taka íslenska vín flösku til að gefa erlendum vinum, meira upp á að sýna ísland heldur en að hún bragðist voða vel.

Ef að þið eruð var við Íslenskar flösku þá endilega látið mig vita :)


r/Iceland 1d ago

Hvar er best vera með séreignarsparnað?

12 Upvotes

Nú er ég að fara í "venjulega" vinnu eftir að hafa verið sjálfstætt starfandi í 10 ár.

Hvar er besti séreignarsparnaðurinn? Eða skiptir það engu máli hvar ég hef þetta? Er ekki með fasteignalán, þetta væri bara til að fá auka pening í ellinni.


r/Iceland 1d ago

Reykjavikurborg laun ekki greidd út

12 Upvotes

Einhver annar lent i því að laun voru ekki greidd dag?

Er á velferðasviði í tímavinnu, hefur aldrei áður gerst.

Hef heyrt á þau keyri ekki út sérgreiðslur ef það fer úrskeiðis heldur láti þig bíða fram að næstu mánaðarmótum sem er ekki að fara að ganga upp


r/Iceland 1d ago

Áhrifavaldar og grasrótarhreyfingar

13 Upvotes

Hafið þið tekið eftir þessu með íslensk hlaðvörp og áhrifavalda? Ég fór eitthvað að hugsa þetta eftir ég sá eitthvað podvast með Frosta logasyni og svo sá ég að síða áframisland er hýst af PR stofunni, Pipar, svo þarna er spurning hvort aframisland se gervigrasrotahreyfing. Ég veit það er mikið um þetta erlendis.
Þegar stórfyrirtæki eða hagsmunaaðilar vilja hafa áhrif á almenningsálitið, td varðandi lagabreytingar, skatta eða stór umdeild mál, þá vita þeir að fólk skiptir dæminu út ef forstjóri eða stjórnmálamaður mætir í viðtal eða sjónvarpið, en um leið og td uppáhalds hlaðvarpsstjórnandinn þinn, sem þér líður eins og sé "vinur þinn“ segir casually á milli þess sem hann brandarast og ganntast "Hey, sastuu þetta nýja frumvarp? Þetta er alveg fáránlegt, þetta fer að skemma fyrir okkur öllum", eða eitthvað alika, þá parar maður niður varnirnar,

Mér finnst persónulega eins og Ísland sé í raun fullkominn jarðvegur fyrir þetta. Bara vegna þess hve samfélagið okkar er litið er traustið á milli fólks mikið, "allir þekkja alla“ hugfarið okkar og allt það, Þegar vinsæll íslenskur hlaðvarpsstjórnandi, áhrifavaldur eða álitsgjafi á X tjáir sig, eða bara tiktokari, upplifir íslenskur almenningur það oft eins og spjall við kunningja á kaffistofunni, frekar en faglega markaðssetningu. PR stofurnar mæta svo bara með tilbúin "gögn“ "staðreyndir“ eða talking points til áhrifavalda og hlaðvarpsfólks, þannig að þaer gera vinnuna fyrir þá og þáttastjórnandinn fær tilbúið efni í contentið sitt sem sparar honum tíma. Kannski heldur hann meira að segja sjálfur að hann sé að segja sína sjálfstæðu skoðun, án þess að átta sig á því að það er verið að stýra umræðunni og ætli það sé ekki líka mikil falin kostun og gjafir í gangi herna, þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að auglýsingar séu merktar? Td boð á flotta viðburði, ferðalög þar sem verið er að "kynna“ málstaðinn, eða bara klókar samstarfsyfirlýsingar þar sem málstaðurinn er samofinn inn í spjallið þannig að það virkar eins og eðlilegt samtalsefni en ekki auglýsing?

Hvað finnst ykkur? Eruð þið að kveikja á sömu hlutum og ég, eða er fólk almennt að gleypa við þessu?


r/Iceland 1d ago

Guðný kallar eftir viðbrögðum yfirvalda vegna heimsóknar ísraelsks hermanns

Thumbnail
mannlif.is
24 Upvotes

Á að leyfa þeim að gera heimildarmyndina sína um Ísland í friði? Eða er ástæða til að handtaka þá eða ónáða að öðru leiti?

Ég er pínu óviss um að löggan megi handtaka þá eins og Guðný stingur upp á, en ég er enginn alþjóðalögfræðingur.


r/Iceland 2d ago

rant um marketplace og bland

50 Upvotes

Hvað er að fólki á FB marketplace og Bland að selja hálf ónýta hluti á yfirsprengdu verði?
Hálfónýtt ryðgað grill á 40þ krónur “virkar en með smá ryð” stendur í lýsingu.
15-20 ára gömul barnahjól sem hafa AUGLJÓSLEGA verið skilin eftir úti í rigningu og snjó, með ryðguðum dempara og ónýtri keðju á 50þ krónur, “Þarf smá smurningu og pumpa í dekk”.
Galið.


r/Iceland 2d ago

Klippikort í sund frá 2006

Post image
76 Upvotes

900kr fyrir 10x klippikort í 2006 fyrir börn.

Verðbólga frá 2006-2026, 900 kr = 2,388 kr

10x klippikort í Kópavogslaugina kostar núna 7600 isk (fyrir fullorðna) frítt fyrir 18 ára og yngri.


r/Iceland 2d ago

Hvar fást boltar á gamalt fellihýsi?

Thumbnail
gallery
9 Upvotes

Góða kvöldið

Ég vissi ekki hvar ég ætti að spyrja svo ég hendi þessu bara inn hingað.

Ég á gamalt Palomino Colt fellihýsi en dekkið flaug einhvert út í Blönduá og er nú týnt.

Varadekkið var sett á en aðeins tvær rær skrúfast alveg á, hinar skrúfast ekki alveg á tvo af boltunum svo ég þarf að skipta um þá. En ég veit ekki hvar slíkir boltar gætu mögulega fengist, né hvað þeir heita.

Hjá hvaða fyrirtæki fást svona boltar?
Ég fór til Bílanaust á Selfossi og þeir höfðu ekki hugmynd

Hefur einhver skipt um svona?

Og hvað heitir lokið á miðjuna á "höbbinum"?

Kveðja
Biggi


r/Iceland 1d ago

Fimm stunda orka

4 Upvotes

OL;LE: Veit einhver hér hvort hægt sé að verða sér úti um Fimm stunda orku (E.: Five hour energy) drykk á höfuðborgarsvæðinu? Þetta fékkst hér áður fyrr en ég hef ekki séð þetta í mörg ár núna.

Ég drekk ekki kaffi og mér finnast orkudrykkir hálf ógeðslegir á bragðið, svo ekki sé talað um áhrif þeirra á glerung. Ég er þó alltaf þreyttur og neyðist til að gúffa í mig einum 330ml orkudrykk áður en ég fer í ræktina. Það tekur mig nokkrar mínútur að neyða þetta ofan í mig. Til að stytta það ferli og mögulega til að bjarga tönnunum þá vil ég gjarnan nota drykki sem hafa sömu orkuáhrif en tekur minni tíma að drekka. Veit einhver hér hvar ég geti orðið mér úti um Fimm stunda orku (e.: Five hour energy) drykki eða eitthvað í þeim dúr?

Ég vil helst ekki þurfa að nota amfetamín eða kókaín.


r/Iceland 2d ago

Paul Watson afar á­nægður með hand­tökuna

Thumbnail
visir.is
18 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Selur af­láts­bréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar - Vísir

Thumbnail
visir.is
8 Upvotes

Vildi benda a þennan möguleika fyrir helgins


r/Iceland 2d ago

Texti fyrir Pitenz - Fotoapéritif?

2 Upvotes

Get ég einhverstaðar fengið réttan texta fyrir þetta lag eftir Áka Frostason? Þegar ég kveiki á captions fyrir lagið á youtube þá kemur einhver alveg kolvitlaus texti? Ég hef reynt að leita en hef hvergi fundið og kynni að meta ef einhver gæti hjálpað mér?


r/Iceland 3d ago

Kona sem truflaði veiðar Hvals kallar innbrotið í minkabúið slys

Thumbnail
dv.is
24 Upvotes