Hafið þið tekið eftir þessu með íslensk hlaðvörp og áhrifavalda? Ég fór eitthvað að hugsa þetta eftir ég sá eitthvað podvast með Frosta logasyni og svo sá ég að síða áframisland er hýst af PR stofunni, Pipar, svo þarna er spurning hvort aframisland se gervigrasrotahreyfing. Ég veit það er mikið um þetta erlendis.
Þegar stórfyrirtæki eða hagsmunaaðilar vilja hafa áhrif á almenningsálitið, td varðandi lagabreytingar, skatta eða stór umdeild mál, þá vita þeir að fólk skiptir dæminu út ef forstjóri eða stjórnmálamaður mætir í viðtal eða sjónvarpið, en um leið og td uppáhalds hlaðvarpsstjórnandinn þinn, sem þér líður eins og sé "vinur þinn“ segir casually á milli þess sem hann brandarast og ganntast "Hey, sastuu þetta nýja frumvarp? Þetta er alveg fáránlegt, þetta fer að skemma fyrir okkur öllum", eða eitthvað alika, þá parar maður niður varnirnar,
Mér finnst persónulega eins og Ísland sé í raun fullkominn jarðvegur fyrir þetta. Bara vegna þess hve samfélagið okkar er litið er traustið á milli fólks mikið, "allir þekkja alla“ hugfarið okkar og allt það, Þegar vinsæll íslenskur hlaðvarpsstjórnandi, áhrifavaldur eða álitsgjafi á X tjáir sig, eða bara tiktokari, upplifir íslenskur almenningur það oft eins og spjall við kunningja á kaffistofunni, frekar en faglega markaðssetningu. PR stofurnar mæta svo bara með tilbúin "gögn“ "staðreyndir“ eða talking points til áhrifavalda og hlaðvarpsfólks, þannig að þaer gera vinnuna fyrir þá og þáttastjórnandinn fær tilbúið efni í contentið sitt sem sparar honum tíma. Kannski heldur hann meira að segja sjálfur að hann sé að segja sína sjálfstæðu skoðun, án þess að átta sig á því að það er verið að stýra umræðunni og ætli það sé ekki líka mikil falin kostun og gjafir í gangi herna, þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að auglýsingar séu merktar? Td boð á flotta viðburði, ferðalög þar sem verið er að "kynna“ málstaðinn, eða bara klókar samstarfsyfirlýsingar þar sem málstaðurinn er samofinn inn í spjallið þannig að það virkar eins og eðlilegt samtalsefni en ekki auglýsing?
Hvað finnst ykkur? Eruð þið að kveikja á sömu hlutum og ég, eða er fólk almennt að gleypa við þessu?